Um heystakk
Heystakkur er umboðssala fyrir notuð föt. Þú sendir okkur kassa með flíkum sem þú notar ekki lengur. Við skoðum þær, myndum og seljum á vefnum, og þú færð þinn hlut þegar þær seljast.

Hvers vegna
Í flestum fataskápum eru góðar flíkur sem eru hættar að vera notaðar. Að selja þær sjálfur tekur tíma: myndatökur, lýsingar, skilaboð og sendingar. Þess vegna enda alltof margar þeirra ónotaðar eða í ruslinu.
Við viljum að það sé jafn einfalt að selja flík og að henda henni. Þú gerir eitt, að senda kassann. Við gerum restina.
Hvernig þetta virkar
- 1
Þú skráir og sendir
Skráðu flíkurnar á vefnum og sendu okkur kassann. Engar myndir, engar lýsingar.
- 2
Við skoðum, myndum og setjum í sölu
Hver flík er skoðuð, ástandið metið og sagt eins og það er, hún ljósmynduð og sett í sölu.
- 3
Þú færð greitt
Þegar flíkin selst pökkum við henni og sendum til kaupanda. Þú færð þinn hlut af söluverðinu.
Ástandsmat
Við höfnum ekki flíkum fyrir að bera merki um notkun. Við segjum frekar nákvæmlega frá ástandi hverrar flíkur, svo kaupandinn veit hvað hann fær og seljandinn þarf ekkert að fela.
- Nýtt
- Ónotað, oft með upprunalegum merkimiðum.
- Eins og nýtt
- Notað örsjaldan og sér ekki á.
- Gott
- Notað en vel með farið, minniháttar merki um notkun.
- Sæmilegt
- Sýnileg merki um notkun sem eru tekin fram í lýsingu.
- Lélegt
- Töluvert slitið eða með galla sem eru skýrt tilgreindir.
Óseldar flíkur
Ef flík selst ekki innan sölutímans ræður seljandinn hvað verður um hana: hún er gefin til góðgerðarmála, send til baka eða sótt til okkar. Við mælum með að gefa.
Við opnum bráðlega.
Skrá mig á biðlista